Innlent

Gæslumenn snöggir til

Kallað var á þyrlu Landhelgisgæslunnar síðdegis í gær til að sækja veikann mann, sem hafði fengið hjartaáfall í grennd við Árnes í Gnúpverjahreppi.

Þyrlan flutti manninn á Landsspítalann, þar sem hann gekkst undir aðgerð. Athygli vekur að að þyrlan var komin á loft aðeins 19 mínútum eftir að kallið barst og að öll áhöfnin var heima hjá sér þegar það gerðist.

Eðlilegt þykir að það geti tekið hátt í klukkustund að koma þyrlu á loft eftir útkall.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×