Innlent

Landsvirkjun verður ígildi olíuiðnaðar Noregs

Arð- og skattgreiðslur Landsvirkjunar verða svo háar á næstu tíu til fimmtán árum, samkvæmt nýrri spá, að forstjórinn líkir því við norska olíuiðnaðinn. Áætlað er að tólf þúsund ný störf geti skapast á næstu 5-6 árum vegna nýrra raforkusamninga og fjárfestinga fyrirtækisins.

Þessi framtíðarsýn kemur fram í skýrslu sem fyrirtækið GAMMA gerði fyrir Landsvirkjun um efnahagsleg áhrif af rekstri fyrirtækisins til ársins 2035. Niðurstaðan er í stuttu máli sú að í virkjunum Landsvirkjunar felst einhver mesta auðlegð Íslendinga. Menn gefa sér þó að hækkandi orkuverð í heiminum skili sér til Íslands.

Ásgeir Jónsson, efnahagsráðgjafi hjá Gamma, einn af höfundum skýrslunar, segir að orkuverð sé að hækka gríðarlega erlendis, sérstaklega á grænni orku, og það hljóti að smitast hingað til lands. Þá séum við með mjög hagkvæmar virkjanir.

Þær forsendur eru líka gefnar að Landsvirkjun fái áfram að virkja með tilheyrandi iðnaðaruppbyggingu, þó í sátt við verndunarsjónarmið, og hvatt til þess að efnahagslægðin verði nýtt. Ásgeir segir að um þetta gildi, þegar horft sé á hagssveifluna; því fyrr því betra. Því fyrr sem takist að takist að skapa umsvif og koma kerfinu aftur af stað - því betra.

Skýrsluhöfundar spá því að fjárfestingar og orkusamningar Landsvirkjunar geti skapað tólf þúsund ný störf í landinu á næstu fimm til sex árum. Þeim reiknast síðan til að skattgreiðslur og arðgreiðslur Landsvirkjunar verði á næstu tíu til fimmtán árum fjórtán prósent af tekjum ríkissjóðs. Þetta eina fyrirtæki geti þannig staðið undir öllum kostnaði við löggæslu, dómsstóla, fangelsi, menningu, íþróttir, trúmál, framhaldsskóla og háskóla.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að ef þetta gangi eftir geti þetta haft ámóta áhrif á lífskjör á Íslandi og olíuiðnaðurinn í Noregi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×