Cruyff: Guardiola gæti hætt hjá Barcelona eftir úrslitaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. maí 2011 15:30 Pep Guardiola, þjálfari Barcelona. Mynd/Nordic Photos/Getty
Johan Cruyff, fyrrum leikmaður og þjálfari Barcelona, telur að það séu líkur á því að Pep Guardiola hætti sem þjálfari Barcelona eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fer fram á Wembley á morgun og þá skipti þar engu máli hvort Barcelona eða Manchester United fagni sigri í leiknum. Hinn fertugi Guardiola hefur unnið níu stóra titla á þremur tímabilum síðan að hann tók við liði Barcelona þar á meðal hefur Barca-liðið unnið spænska meistaratitilinn öll þrjú árin. Guardiola á líka möguleika á því á morgun að gera Barcelona að Evrópumeisturum í annað skiptið á þremur árum en Barcelona vann United í úrslitaleiknum árið 2009. „Guardiola er búinn að leggja á sig mikla vinnu undanfarin ár og það kæmi mér ekki á óvart ef hann myndi hætta eftir leikinn á laugardaginn sama hvernig leikurinn fer," sagði Johan Cruyff í viðtali hjá ítalska blaðinu Gazzetta dello Sport. „Ef hann hættir þá verður það aðeins vegna þess að það er mjög erfitt að ráða við svona mikla pressu í langan tíma. Ég held að hann vilji þess vegna taka sér ársfrí," sagði Cruyff. Blaðamaður Gazzetta dello Sport spurði Cruyff hver ætti að taka við Barcelona-liðinu og Johan Cruyff nefndi landa sinn Marco van Basten.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Hafþór Júlíus annar sterkasti maður jarðar: Setti tvö heimsmet Sport Fékk rautt spjald fyrir að pissa Fótbolti Vill eignast lið í hverri heimsálfu Fótbolti Undirbýr sig fyrir NBA tímabilið á bólakafi Körfubolti Níræð tugþrautarkona með 35 heimsmet Sport Söngurinn um Haaland kom í bakið á honum: „Fyndinn náungi“ Enski boltinn Fyrstur til að skora fjögurra stiga körfu Körfubolti Rúnar Páll skýtur á KR: Svona vinna „snillingarnir í Vesturbænum“ Íslenski boltinn „Við erum með YouTube-gaur að berjast við besta boxara sögunnar“ Sport Segir Sterling hafa brugðist liðsfélögum sínum Enski boltinn Fleiri fréttir Hafa unnið alla leiki á móti Fram í heilan áratug Víkingur fær hvíld milli Evrópuleikjanna Henry hættir eftir silfrið Sjáðu mörkin úr fallslögunum og jafnteflinu fyrir norðan Jákvætt að aðstoðarþjálfarinn sé ekki á bekknum Kæra KR tekin fyrir á morgun Guardiola: Haaland líður betur en á sama tíma í fyrra Conte baðst afsökunar: „Bráðnuðum eins og snjór í sól“ Þurftu að stækka klefann hjá Chelsea Fengu að heyra það frá Ancelotti Segir Sterling hafa brugðist liðsfélögum sínum Fékk rautt spjald fyrir að pissa Vill eignast lið í hverri heimsálfu Söngurinn um Haaland kom í bakið á honum: „Fyndinn náungi“ „Árbærinn er vaknaður“ Uppgjörið: HK - Fylkir 0-2 | Manni færri með afar mikilvægan sigur Uppgjörið: KA - Stjarnan 1-1 | Stigum deilt eftir skalla í stöng í blálokin Mikael Egill lagði upp gegn Lazio „Þetta var svolítið skrýtið og óþægilegt“ Vonbrigði í fyrsta leik Mbappé á Spáni Rúnar Páll skýtur á KR: Svona vinna „snillingarnir í Vesturbænum“ Ekkert bikarævintýri í ár hjá Ísaki Meistararnir byrja á sterkum sigri Orri Steinn bjargaði stigi og Elías Már lagði upp í sigri á Ajax Bryndís Arna lagði upp sigurmarkið Brentford byrjar tímabilið á sigri Gomes á batavegi eftir höfuðhöggið skelfilega Stefán Teitur fær þriðja þjálfarann í jafn mörgum leikjum Emilía hættir ekki að skora Þrír leikmenn Marseille með vafasama fortíð Sjá meira