Erlent

Segja Ratko of veikan fyrir framsal

Ratko.
Ratko.
Fresta þurfti réttarhöld yfir Ratko Mladic sem varða framsal hans til stríðsglæpadómstólsins í Haag vegna bágrar heilsu.

Réttarhöldin eiga að fara fram í heimalandi hans, Serbíu, en lögmaður hans sagði í gær að Ratko ætti erfitt með að tjá sig og væri í slíku ástandi það ætti ekki að framselja hann.

Serbeneskir fjölmiðlar gáfu til kynna í gær að Ratko hefði verið dofinn í hægri handleggnum, og bæri einkenni hjartaáfalls.

Ratko er sakaður um að hafa myrt tæplega átta þúsund manns í Bosníustríðinu snemma á tíunda áratugnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×