Erlent

Ætlar að synda frá Flórída til Kúbu

Diana Nyad.
Diana Nyad.
Hin sextíu og eins árs gamla Diana Nyad tilkynnti í dag að hún ætlar að synda á milli Flórída og Kúbu.

Alls skilja 165 kílómetrar löndin tvö að. Díana hefur áður reynt að synda á milli. Það var árið 1978 en þá gafst hún upp eftir að hún fór að sjá ofsjónir, og endaði talsvert af leið.

Nú ætlar Díana að klára það sem henni tókst ekki fyrir þrjátíu árum. Hún hefur æft sig með því að synda ítrekað í kringum Manhattan eyjuna. Díana ætlar að hefja sundið þann 23. júlí næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×