Erlent

Hertogahjónin farin í brúðkaupsferð

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hertogahjónin af Cambridge eru farin í brúðkaupsferð. Mynd/ afp.
Hertogahjónin af Cambridge eru farin í brúðkaupsferð. Mynd/ afp.
Hertogahjónin af Cambridge, þau Vilhjálmur Bretaprins og Katrín eiginkona hans, eru farin í brúðkaupsferð, nú þegar 10 dagar eru liðnir frá brúðkaupi þeirra í Westminister Abbey. Daily Telegraph segir að konungshirðin hafi staðfest að þau hefðu lagt af stað í ferðina en ekkert hefur fengist staðfest um það hvert þau fóru. Óstaðfestar heimildir herma að þau hafi farið til Sikileyjar en aðrar heimildir segja að þau hafi farið á Indlandshaf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×