Menning

Sænskir töfrar

Tom Stone sýnir töfrabrögð í dag.
Tom Stone sýnir töfrabrögð í dag.
Sænski töframaðurinn Tom Stone verður aðalgesturinn á árlegri töfrasýningu Hins íslenska töframannagildis sem verður haldin í Salnum í dag.

Stone hefur ferðast víða um heim undanfarin ár og sýnt töfrabrögð við góðar undirtektir. Einnig stíga á svið fimm félagar úr HÍT, þeir Ingó Geirdal, Kristinn Gauti, Gunnar Kr., Einar einstaki og Jón Víðis. Kynnir er Lalli töframaður.

Um miðbik sýningarinnar verður gert hlé og þá verða sýnd töfrabrögð um allt hús. Sýningin hefst klukkan 16 og fást miðar á Midi.is og víðar. Húsið verður opnað kl. 15.30 og þá strax verða töframenn víða í húsinu og sýna töfrabrögð í nálægð, þar sem gestirnir fá að taka þátt í töfrabrögðunum og aðstoða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.