Launamunur kynjanna eykst á ný 3. maí 2012 08:00 fólk
Launamunur kynjanna dróst saman í kreppunni árin 2009 og 2010 en hefur nú aukist á ný. Opinberir starfsmenn eru langþreyttir á aðgerðarleysi stjórnvalda og vilja aðgerðir en ekki fundahöld um málið. Aðilar vinnumarkaðarins hafa unnið að jafnlaunastaðli síðan 2008. Stefnt er að því að hann taki gildi á þessu ári. Launamunur kynjanna hefur dregist nokkuð saman á síðustu árum. Það breytir því ekki að hann er enn umtalsverður og virðist vera að aukast á ný. Þetta kemur fram í skýrslu Þjóðmálastofnunar um umfang kreppunnar og afkomu tekjuhópa. Þar sýna allir mælikvarðar að munurinn fór minnkandi frá um 30 til 35 prósentum árið 1998 í 13 til 20 prósent árið 2010. Síðan hefur hann aukist á ný. Munurinn minnkar verulega árin 2009 og 2010 og gætir þar sérstaklega minni atvinnutekna karla, en slíkt á sér samsvörun í mörgum Evrópuríkjum. Þá segir í skýrslunni að bæði fyrir og eftir hrun hafi launahækkanir verið meiri hjá konum. Munurinn eykst á nýLaunakönnun SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu frá september 2011, sýnir hins vegar að kynbundinn launamunur félagsmanna hefur aukist á ný. Árið 2010 var hann, að teknu tilliti til vaxtaálags, 9,9 prósent en hafði aukist í 13,2 prósent árið 2011. Könnun þjóðmálastofnunar staðfestir þetta, líkt og sjá má á meðfylgjandi línuriti. „Þó talsverður árangur hafi náðst í jöfnun launakjara milli kynjanna á síðasta áratug er þó enn talsvert verk óunnið á þeim vettvangi. Mikilvægt er að launastefna vinnumarkaðarins og skatta- og bótastefna stjórnvalda vinni saman að þeim markmiðum,“ segir í skýrslunni. Opinberir starfsmenn langeygirBSRB vinnur nú að víðtækri könnun fyrir öll aðildarfélög um kynbundinn launamun. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir opinbera starfsmenn langeyga eftir úrbótum í málaflokknum. „Við erum búin að funda með starfsfólki ráðherranna aftur og aftur og mánuðir og ár líða án þess að nokkuð gerist. Við erum orðin mjög grimm yfir því að allt sé að falla í sama farið aftur og við ætlum ekki að læra neitt af hruninu.“ Fulltrúar BSRB áttu fund í forsætisráðuneytinu í gær um málið. „Það er sárt að sjá að munurinn er að aukast innan stjórnsýslunnar, af öllum stöðum. Ég vil fá aðgerðir í málinu, ekki fleiri fundi.“ JafnlaunastuðullÍ kjarasamningum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og Samtaka atvinnulífsins (SA) árið 2008 var skrifað undir samkomulag þess efnis að komið yrði á fót jafnlaunastuðli fyrir fyrirtæki. Vinna hefur staðið yfir síðan og vonast er til að henni ljúki á þessu ári. Hugmyndin á bak við jafnlaunastuðul er sótt í aðra gæðastaðla. Fyrirtæki munu vinna eftir skýrum leiðbeiningum að jafnlaunastefnu og lokaferli slíks starfs er að fá vottun frá viðurkenndum aðila, eins og fyrir ISO staðalinn. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir að vinnan hafi gengið hægar en ætlað var. Efni staðalsins sé frágengið, en verið sé að vinna í skýringum á viðaukum og leiðbeiningum. Hann segir um brautryðjendastarf að ræða, slíkir staðlar hafi ekki verið gerðir áður og ekki hægt að sækja í erlendar fyrirmyndir. „Í aðalatriðum snýst þetta um að vera með fyrir fram skilgreind viðmið við launasetningu og að aðferðirnar þar um séu gegnsæjar. Allt ferlið er skráð og skjalað og síðan fer fram vöktun. Þetta snýst um að við það að ákveða laun mismunandi hópa sé fyrir fram skilgreind og gegnsæ aðferð. Það á að tryggja að ekki sé um kerfisbundna mismunun að ræða.“
Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Innlent Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Innlent Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Innlent Fleiri fréttir Kom ekkert annað til greina en Miðflokkurinn Kostnaður við snagana nam 1,7 milljónum Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Slátur og stuð í félagsheimilinu á Blönduósi Alma vill leiða Samfylkinguna í Kraganum Nektarmyndir gerðar óskýrar sjálfkrafa á Instagram Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Hannes snýr baki við Sjálfstæðisflokknum og fer fram fyrir Samfylkingu Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Vendingar í pólitíkinni og áhrif frestunar bankasölu á markaðinn Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Slagurinn harðnar í Suðvestur hjá Sjálfstæðisflokki „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð „Það þarf að nýta auðlindir landsins, það er alveg ljóst“ Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Fleiri þvottavélar en pólitíkusar á skjánum vikuna fyrir kosningar Hefur sett saman um 100 módelbíla í Hveragerði Dæmi um að menntaðir kennarar nái ekki endum saman Óvænt og taktískt útspil Sigurðar Inga Páll Valur vill forystusæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi Fyrstu skoðanakannanir eftir stjórnarslit og öll auglýsingapláss uppbókuð Lætur af störfum sem bæjarstjóri Voga Vill leiða Viðreisn í Suðurkjördæmi Sjá meira