Innlent

Virkjunin gæti breyst í ísklump

Hallgrímur Indriðason, jarðfræðingur Ístaks á Grænlandi.
Hallgrímur Indriðason, jarðfræðingur Ístaks á Grænlandi. Mynd/Egill Aðalsteinsson
Virkjanagöng, sem Ístaksmenn bora á Grænlandi langt norðan heimskautsbaugs, liggja í svo köldu bergi að það virkar eins og frystikista. Það er því raunveruleg hætta á því að virkjunin geti frosið og orðið að ísklumpi.

Þetta kemur fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 laust fyrir klukkan sjö í kvöld en þar verður fjallað um þær miklu áskoranir sem mæta íslenskum verktökum og verkfræðistofum við hönnun og smíði virkjunar skammt frá bænum Ilulissat við Diskóflóa. Virkjunin er grafin inn í fjöll við rætur Grænlandsjökuls, þar sem verður yfir 30 stiga frost á veturna, og verða inntaksmannvirkin sprengd undir jökullón og þar gert einskonar niðurfall, rétt eins og í baðkari.

Þarna er sífreri í berginu, svokallað permafrost, og segir Hallgrímur Indriðason, jarðfræðingur Ístaks, að vatnsgöng í slíku bergi hafi aðeins einu sinni áður verið gerð í heiminum. Styrkja þurfi bergið sérstaklega en jafnframt að tryggja að vatnsrennsli stöðvist aldrei í gegnum virkjuna. Þá hafi við hönnun verið leitast við að láta jarðgöngin liggja sem minnst í frosnu bergi.

Í þættinum verður einnig fjallað um mannlífið í þessari afskekktu Íslendinganýlendu.


Tengdar fréttir

Íslendingar í klakahöll undir Grænlandsjökli

Virkjun sem Ístak er að smíða á Grænlandi við Diskóflóa lengst norðan heimskautsbaugs er stærsta verkefni í fjörutíu ára sögu fyrirtækisins. Þar er sennilega sú Íslendinganýlenda sem fjærst er öðrum byggðum bólum í sannkallaðri klakahöll við bæinn Ilulissat. Fyrri reynsla Ístaksmanna af smíði virkjana á Grænlandi réð miklu þegar Orkustofnun Grænlands fól þeim einnig þetta tólf milljarða króna verk, þótt þeir ættu ekki lægsta boð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×