Menning

Fræbbblarnir rokka á málverkasýningu

Listakonan Guðrún Benedikta Elíasdóttir opnar listasýningu á Kexinu í kvöld. Pönksveitin Fræbbblarnir mun stíga á stokk í tilefni þess.fréttablaðið/anton brink
Listakonan Guðrún Benedikta Elíasdóttir opnar listasýningu á Kexinu í kvöld. Pönksveitin Fræbbblarnir mun stíga á stokk í tilefni þess.fréttablaðið/anton brink
Pönksveitin Fræbbblarnir munu koma saman og troða upp á opnun málverkasýningar Guðrúnar Benediktu Elíasdóttur á Kexinu í kvöld. Nokkrir meðlimir sveitarinnar eru í matarklúbbi ásamt Guðrúnu sem kallaður er Goutons Voir.

„Maðurinn minn var með þeim í menntaskóla og við höfum verið saman í matarklúbb frá áttatíu og eitthvað,“ segir Guðrún Benedikta og bætir við: „Þetta byrjaði reyndar sem víngerðarklúbbur, sem útskýrir nafnið Goutons Voir, en svo hefur þetta þróast út í matarklúbb með árunum.“ Guðrún Benedikta segist ekki vera vön að hafa tónlistaratriði eða aðrar uppákomur á sýningum sínum en að þetta hafi verið sameiginleg hugdetta hennar og meðlima Fræbbblanna. Það var þó ekki einfalt starf að samræma dagskrá Kexins, hljómsveitarmeðlimanna og hennar. „Nei, það tók margar vikur að finna hentuga dagsetningu enda þurfti að samræma dagskrána á Kexinu, heila hljómsveit í sumarfríi og mig.“

Guðrún Benedikta mun sýna átta stór verk í Gym og Tonic-sal Kexins en fjögur verkanna voru áður til sýnis á hinni virtu Cal-sýningu í Lúxemborg, þar sem Guðrún hefur verið búsett síðustu sjö ár.

Sýningin opnar klukkan 22 í kvöld og stendur til 16. ágúst. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.