Fótbolti

Steinþór í stuði með Sandnes

Steinþór Freyr í búningi Sandnes.
Steinþór Freyr í búningi Sandnes.
Steinþór Freyr Þorsteinsson fór enn eina ferðina á kostum í liði Sandnes Ulf er liðið fór langt með að bjarga sér frá falli í norsku úrvalsdeildinni.

Steinþór skoraði eitt mark og fiskaði vítaspyrnu í 5-1 sigri Sandnes á Tromsö.

Óskar Örn Hauksson lék síðustu níu mínútur leiksins fyrir Sandnes en Arnór Ingvi Traustason kom ekkert við sögu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×