Körfubolti

Jakob valinn besti íþróttamaður Sundsvall

Jakob (10) fékk flott verðlaun í kvöld.
Jakob (10) fékk flott verðlaun í kvöld.
Körfuknattleikskappinn Jakob Örn Sigurðarson var í kvöld valinn besti íþróttamaðurinn í Sundsvall.

Jakob Örn átti frábært tímabil með Sundsvall Dragons og var í lykilhlutverki er Drekarnir tryggðu sér sænska meistaratitilinn.

Leikstjórnandinn hefur síðan verið að leika vel fyrir Sundsvall í vetur og sló mörgum afbragðsíþróttamönnum við í kjöri kvöldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×