Körfubolti

Haukur Helgi og félagar áfram öflugir á heimavelli

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson.
Haukur Helgi Pálsson. Mynd/Nordic Photos/Getty
Haukur Helgi Pálsson og félagar í Assignia Manresa unnu 21 stigs heimasigur á Baloncesto Fuenlabrada, 80-59, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Manresa fór upp fyrir Fuenlabrada og upp í 11. sætið með þessum sigri en alls eru sex lið með sama stigafjölda í 7. til 12. sæti deildarinnar.

Þetta var þriðji sannfærandi heimasigur Manresa-liðsins í röð en af 7 af 9 sigrum liðsins á tímabilinu hafa einmitt komið á hinum sterka heimavelli liðsins í Manresa.

Haukur fékk að spila í tæpar níu mínútur í leiknum og var með 2 stig og 1 fráköst á þeim tíma. Manresa tapaði með sex stigum þær mínútur sem hann spilaði. Haukur tók 2 skot og hitti úr öðru þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×