Körfubolti

Fimm sigrar í röð hjá Sundsvall | Hlynur með tvennu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Bæringsson var góður í kvöld.
Hlynur Bæringsson var góður í kvöld. Mynd/Valli
Sundsvall Dragons hélt sigurgöngu sinni áfram í sænska körfuboltanum í kvöld þegar liðið vann Borås Basket 88-86 í miklum spennuleik í Sundsvall. Drekarnir hafa nú unnið fimm leiki í röð og eru aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Norrköping Dolphins.

Hlynur Bæringsson skoraði síðasta stig leiksins af vítalínunni en hann var með 18 stig, 12 fráköst og 4 stoðsendingar í leiknum.

Jakob Örn Sigurðarson bætti við 13 stigum, 3 stolnum boltum og 2 stoðsendingum en hann hitti ekki vel eða aðeins 3 af 13 skotum sínum.

Pavel Ermolinskij gat ekki spilað með Sundsvall vegna meiðsla en hann hefur ekki spilað með liðinu síðan 10. janúar eða í meira en mánuð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×