Innlent

Rolex-ræninginn í héraðs­dómi

Maðurinn var fluttur til landsins frá Sviss þar sem hann var handtekinn í síðasta mánuði.
Maðurinn var fluttur til landsins frá Sviss þar sem hann var handtekinn í síðasta mánuði. Mynd/Valli

Pólverji sem grunaður er um rán í úraverslun Michelsen á Laugavegi í október í fyrra er kominn til landsins og er dómari nú að taka afstöðu til kröfu Ríkissaksóknara um gæsluvarðhald yfir honum. Maðurinn var ásamt félaga sínum sem einnig er grunaður í málinu handtekinn í Sviss í síðasta mánuði.

Hinn maðurinn er enn í Sviss en hann sætir rannsóknar þar ytra. Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari segist þó gera ráð fyrir því að hann komi hingað til lands, fyrr eða síðar, til að standa skil á gjörðum sínum. Félagi mannanna sem átti að koma ránsfengnum úr landi var á dögunum dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi.

Mennirnir sem rændu Michelsen voru fjórir og því gengur einn þeirra enn laus. Talið er að hann sé í Póllandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×