Innlent

Smáey seld frá Eyjum, áhöfninni sagt upp störfum

Allri 12 manna áhöfn togskipsins Smáeyjar frá Vestmannaeyjum hefur verið sagt upp og skipið selt til Grenivíkur, án kvóta.

Smáey mun þar leysa skuttogarann Frosta af hólmi, en hann hefur verið seldur til Kanada. Einhverjir úr áhöfn Smáeyjar munu fá störf á öðrum skipum útgerðarfyrirtækisins Bergs Hugins, og aflaheimildirnar verða væntanleg færðar yfir á þau.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×