Prjóna peysu á traktorinn 21. mars 2012 20:30
Kvenfélagskonur í Eyjafirði prjóna nú flík í öllum regnbogans litum utan um traktor sem ætlunin er að sýna á handverkshátíð á Hrafnagili í ágústmánuði í sumar. Eyfirðingum hefur með handverkshátíðinni tekist að skapa héraðinu þá ímynd að vera höfuðból heimilisiðnaðar á Íslandi. Það sem kvenfélagskonurnar eru að bardúsa þessa dagana á landnámsjörðinni Kristnesi toppar þó sennilega allt annað. Þær mæta þangað úr þremur kvenfélögum Eyjafjarðarsveitar til að klæða gamla dráttarvél af Deutz-gerð í skrautlega ullarflík. Ester Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Handverkshátíðarinnar, segir í viðtali á Stöð 2 að þarna í sveitinni sé hugmyndaríkt fólk sem langaði að gera eitthvað skemmtilegt og spennandi til að vekja athygli á handverkshátíðinni, en frestur sýnenda til að sækja um aðstöðu er til 1. apríl. Konurnar byrjuðu á því að taka snið af traktornum en flíkin er bæði prjónuð og hekluð. Það var ekki tilviljun að traktor var valinn í þessu öfluga landbúnaðarhéraði, hann minnir á tengsl handverks og landbúnaðar, segir Ester. Kvenfélögin skipta á milli sín verkhlutum. Hjálpin í Saurbæjarhreppi sér um framhlutann, Iðunn í Hrafnagilshreppi klæðir felgurnar og öryggisgrindina og Aldan Voröld í Öngulstaðahreppi sér um afturhlutann. Verkið skotgengur, en aðeins eru liðnir fjórir dagar frá því þær hófust handa. Þeim þótti rétt að skála fyrir verkinu, sérrí var því hellt í staup, eins og sjá mátti í frétt Stöðvar 2, og gleðin hélt áfram.
Mest lesið „Búið að leggja upp dauðafæri fyrir Donald Trump“ Erlent Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna Erlent „Litu bara á þetta eins og hefði verið keyrt á kind“ Innlent Betlari til leiðinda í miðbænum Innlent Ætlar að áfrýja til Landsréttar Innlent Lík Jay Slater fundið Erlent Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Innlent Íslendingur fannst látinn á Spáni Innlent Stáli fyljar merar enn á fullu 26 vetra gamall Innlent J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Erlent Fleiri fréttir „Litu bara á þetta eins og hefði verið keyrt á kind“ Ætlar að áfrýja til Landsréttar Stáli fyljar merar enn á fullu 26 vetra gamall Betlari til leiðinda í miðbænum Síbrotamaður dæmdur og Siggi stormur svarar fyrir spána „Hættan fyrir vinnandi fólk er raunveruleg“ Búseturétthafar í Grindavík losna undan samningum Þriggja bíla árekstur undir Hamraborg Bókanir undir væntingum en ekki hægt að tala um hrun Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Veggmynd Guðsteins fer ekki fet Kæra MAST vegna rekstrarleyfis til Arnarlax Íslendingur fannst látinn á Spáni Aðventistar svara sýslumanni fullum hálsi Sniglarnir taka ekki þátt í mótmælum bifhjólafólks í kvöld „Þung skref“ að höfða mál gegn máttarstólpa Kourani, banatilræði við Trump og efnhagsmálin Ákærður vegna andlátsins í Naustahverfi Kourani dæmdur í átta ára fangelsi Lárus skuli fyrst taka til í „eigin veðmálastarfsemi“ Tekjur mestar í Vestmannaeyjum og minnstar í Tjörneshreppi Of lítið fjármagn til viðhalds hafi kostað mannslíf Handtekinn grunaður um rán og frelsissviptingu Ungir menn sem veðja stjórnlaust hafi varann á Stúlkan er fundin Morðtilræði gegn Trump, úrslitaleikur EM og fjárhættuspil „Það er allt búið að vera á floti hérna“ Hjólreiðamaður með opið beinbrot í Þórsmörk Utanríkisráðherra segir árásina hörmulega Miklar tafir vegna slyss norðan Hvalfjarðargangna Sjá meira