Gylfi valinn besti leikmaður marsmánaðar í ensku úrvalsdeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. apríl 2012 14:00 Gylfi Þór Sigurðsson var frábær í mars. Mynd/Nordic Photos/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Swansea City, hefur verið valinn besti leikmaður marsmánaðar í ensku úrvalsdeildinni en Gylfi spilaði frábærlega með nýliðunum í mars. Þetta er mikill heiður fyrir íslenska landsliðsmanninn sem er fyrsti Íslendingurinn sem hlýtur þessi verðlaun. Það er sérstök nefnd á vegum ensku úrvalsdeildarinnar sem velur besta leikmanninn en það hefur ekkert farið framhjá neinum sem fylgjast með enska boltanum hvernig Gylfi hefur stimplað sig inn í bestu deild í heimi. Gylfi skoraði 4 mörk í 4 leikjum í mánuðinum og hjálpaði Swansea að vinna þrjá af fjórum leikjum sínum. Mörkin hans komu í tveimur útileikjum en hann skoraði tvö mörk í bæði 2-0 sigri á Wigan og 3-0 sigri á Fulham. Gylfi kemst í flottan hóp með því að hljóta þessi verðlaun en menn eins og David Silva, Robin van Persie, Gareth Bale og Scott Parker hafa allir hlotið þau í vetur. Owen Coyle, stjóri Bolton var að sama skapi valinn besti stjóri mánaðarins.Leikmenn mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu:Ágúst Edin Džeko, Manchester CitySeptember David Silva, Manchester CityOktóber Robin van Persie, ArsenalNóvember Scott Parker, TottenhamDesember Demba Ba, NewcastleJanúar Gareth Bale, TottenhamFebrúar Peter Odemwingie, West Bromwich AlbionMars Gylfi Þór Sigurðsson, Swansea City
Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt Fótbolti Fleiri fréttir „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Fjöldi stuðningsmanna Man. United fór of snemma af vellinum í gærkvöldi Arne Slot: Samningarnir við Van Dijk og Salah sýna okkar metnað Ætlar að nota krakka í síðustu leikjum Man. United í ensku deildinni Van Dijk fær 68 milljónir á viku Hálf úrvalsdeildin á eftir Delap Van de Ven: Tottenham vill vinna Evrópudeildina fyrir Postecoglou Van Dijk skrifaði undir nýjan samning við Liverpool Newcastle upp í þriðja sætið Onana byrjar gegn Lyon en tímabilinu lokið hjá Zirkzee Van Dijk býst við mjög viðburðaríku sumri hjá Liverpool Chelsea eyddi tíu milljörðum í umboðsmenn Lélegasta lið Man United frá upphafi ensku úrvalsdeildarinnar Þjálfari Newcastle að jafna sig eftir lungnabólgu Rory vill veita leikmönnum Man United innblástur Stjórinn fór á barinn með stuðningsmönnunum eftir leik „Einbeitum okkur að fimmtudeginum“ Sjá meira