Körfubolti

Helena með 14 stig í fyrsta leiknum í úrslitakeppninni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir var næststigahæst þegar Good Angels Kosice vann öruggan 33 stiga sigur á Dannax Sport Kosice í fyrsta leiknum í einvígi liðanna í undanúrslitum slóvakísku úrslitakeppninnar í körfuvolta.

Helena var í byrjunarliðinu og skoraði 14 stig í leiknum sem Good Angels vann 88-55. Það þarf að vinna þrjá leiki til þess að komast áfram í úrslitaeinvígið. Good Angels Kosice vann alla 24 leiki sína í deildarkeppninni og er því mjög sigurstranglegt í úrslitakeppninni.

Það má sjá svipmyndir frá leiknum með því að smella hér fyrir ofan en þar sést Helena (númer 24) meðal annars skora nokkrar góðar körfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×