Lífið

Bleikar buxur stela senunni

myndir/cover media
Leikkonan Eva Longoria, 37 ára, yfirgaf snyrtistofu á laugardaginn í Los Angeles.

Eins og sjá má var hún glæsileg klædd í bleikar buxur og hvíta skyrtu.

Litaðar gallabuxur eru sjóðheitar í sumar hvort sem það er í Hollywood eða Reykjavík.

Til gamans má geta að sjónvarpsþættirnir vinsælu Desperate Housewives sem komu Evu á kortið hófu göngu sína fyrir níu árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×