Handbolti

Sigurjón semur við uppeldisfélagið

Sigurjón er kominn heim.
Sigurjón er kominn heim. mynd/ír
ÍR-ingar halda áfram að safna liði fyrir komandi átök í N1-deild karla. Þeir hafa nú samið við hægri hornamanninn Sigurjón Björnsson sem kemur frá HK.

Sigurjón er reyndar uppalinn ÍR-ingur og má því segja að hann sé kominn heim.

Hornamaðurinn varð Íslandsmeistari með HK á dögunum og stóð sig virkilega vel í úrslitakeppninni. Hans verður því örugglega sárt saknað í Kópavoginum.

Sigurjón skrifaði undir tveggja ára samning við ÍR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×