Íslenski boltinn

Björk tryggði Blikum sigur í Eyjum

Breiðablik komst á topp Pepsi-deildar kvenna, tímabundið hið minnsta, er liðið vann sterkan 0-1 útisigur á ÍBV.

Það var Björk Gunnarsdóttir sem skoraði eina mark leiksins á tíundu mínútu að því er fram kemur á urslit.net.

Blikar eru með sjö stig eftir þrjá leiki. Þór/KA getur náð toppsætinu aftur síðar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×