Fékk heldur ekki að heita Blær og fagnar málaferlum Birkir Blær skrifar 28. júní 2012 21:55 Þuríður heitir ekki Blær - opinberlega.
Þuríður Blær, leikaranemi, fagnar málaferlum gegn innanríkisráðherra til að fá úrskurði mannanafnanefndar um að konur megi ekki heita Blær ógilta. Þuríður er einn þeirra stúlkna sem aldrei fékk að heita Blær opinberlega og hefur gegnum tíðina staðið í miklu stappi við mannanafnanefnd vegna þessa. Þuríður og aðstandendur hennar gengu aldrei svo langt að höfða mál. Þau skrifuðu hins vegar mannanafnanefnd ítrekað bréf og bentu á rök fyrir því að stúlkur mættu heita Blær. Aðeins viku áður en átti að gefa Þuríði nafnið Blær hafði mannanafnanefnd ákveðið að stúlkur mættu ekki bera karlmannsnöfn nema fordæmi væru fyrir því í málinu, að sögn Þuríðar Blævar. „En málið var að það var fordæmi fyrir því," segir Þuríður Blær enda er vitað til þess að ein kona heiti Blær í þjóðskrá, en sú er fædd árið 1973. „Mannanafnanefnd þótti fordæmið hins vegar ekki nógu skýrt, það bæri ekki vott um hefð," segir Þuríður Blær. Öfugt við karlkyns orðin auður og ilmur komst því mannanafnanefnd að þeirri niðurstöðu að stúlkur mættu ekki bera karlmannsnafnið Blær.Málaferli Fjórtán ára dóttir Bjarkar Eiðsdóttur hefur nú höfðað mál gegn innanríkisráðherra til að fá þessum úrskurðum mannanafnanefndar hnekkt eins og mbl.is greindi frá í dag. Stúlkan fékk ekki að heita Blær á sínum tíma og hefur síðan gengið undir nafninu Stúlka Bjarkardóttir í opinberum skjölum. Ekki er vitað til þess að áður hafi verið reynt að fá úrskurði mannanafnanefndar ógilta. Þuríður Blær fagnar þessum málatilbúnaði innilega. „Já, ég fagna þessu. Algerlega!" segir hún. „Það er náttúrlega dálítið búið að dauðadæma þetta ef hún tapar. En ef hún vinnur þá finnst mér að ég ætti líka að fá að heita Blær. Og allar hinar stúlkurnar sem eru í sömu sporum."
Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Innlent Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Innlent Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Innlent Fleiri fréttir Kom ekkert annað til greina en Miðflokkurinn Kostnaður við snagana nam 1,7 milljónum Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Slátur og stuð í félagsheimilinu á Blönduósi Alma vill leiða Samfylkinguna í Kraganum Nektarmyndir gerðar óskýrar sjálfkrafa á Instagram Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Hannes snýr baki við Sjálfstæðisflokknum og fer fram fyrir Samfylkingu Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Vendingar í pólitíkinni og áhrif frestunar bankasölu á markaðinn Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Slagurinn harðnar í Suðvestur hjá Sjálfstæðisflokki „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð „Það þarf að nýta auðlindir landsins, það er alveg ljóst“ Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Fleiri þvottavélar en pólitíkusar á skjánum vikuna fyrir kosningar Hefur sett saman um 100 módelbíla í Hveragerði Dæmi um að menntaðir kennarar nái ekki endum saman Óvænt og taktískt útspil Sigurðar Inga Páll Valur vill forystusæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi Fyrstu skoðanakannanir eftir stjórnarslit og öll auglýsingapláss uppbókuð Lætur af störfum sem bæjarstjóri Voga Vill leiða Viðreisn í Suðurkjördæmi Sjá meira