Sport

Caroline Wozniacki fær nýjan risasamning hjá Adidas

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Caroline Wozniacki.
Caroline Wozniacki. Mynd/AFP
Það hefur ekki gengið vel hjá dönsku tenniskonunni Caroline Wozniacki það sem af er árinu en þeir hjá Adidas hafa það mikla trú á henni að þeir hafa boðið henni nýjan risasamning.

Ekstra Bladet segir frá því að það eigi bara eftir að ganga frá formsatriðum í þessum samingi og að þetta sé og verði stærsti samningurinn sem Wozniacki mun gera um ævina.

Samingurinn hefur verið í vinnslu í hálft ár og var klár fyrir opna franska meistaramótið. Forráðamenn Adidas bíða nú eftir rétta tækifærinu til þess að kynna hann en það verður ekki fyrr en Caroline Wozniacki kemst aftur á flug á tennisvellinum.

Caroline Wozniacki byrjaði árið í efsta sæti heimslistans en hefur síðan dottið alla leið niður í sjöunda sæti. Hún komst bara í átta manna úrslit á opna ástralska mótinu og datt út í 3. umferð á opna breska. Wozniacki hefur aldrei unnið risamót og bara einu sinni komist í úrslit (Opna bandaíska 2009).

Caroline Wozniacki hóf keppni á Wimbledon-mótinu í dag en það er eina risamótið þar sem hún hefur aldrei komist í átta manna úrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×