Innlent

Annie Mist í gírnum

BBI skrifar
Annie Mist Þórisdóttir er komin á skrið á heimsmeistaramótinu Reebok CrossFit Games. Nú eru fjórar greinar eftir og hún er í fyrsta sæti með 46 stiga forystu.

Eftir heldur slaka byrjun á fyrsta keppnisdegi sýnir hún nú sínar bestu hliðar. Í gær birtist myndbandið „Hin íslenska Annie er snúin aftur" á YouTube. Myndbandið má nálgast með því að smella á tengilinn hér að ofan en þar sést Annie skriðtækla hverja þrautina á fætur annarri, m.a. sund, hjólreiðar o.fl.

„Loksins finnst mér ég vera ég sjálf," segir Annie í myndbandinu. Keppendur vissu ekki að keppnin myndi byrja á miðvikudeginum, hún átti upphaflega að byrja á föstudegi. Þetta kom keppendum á óvart og Annie segir frá að hún hafi verið ósátt með að byrja þá.

Ekki hefur enn verið tilkynnt hvaða fjórar þrautir eru eftir. 100 stig eru í pottinum fyrir hverja þraut svo björninn er langt því frá unnin þó Annie sé í yfirburða stöðu.

Ef Annie stendur uppi sem sigurvegari hlýtur hún 250 þúsund dollara í verðlaunafé, sem eru yfir 32 milljónir króna. Annie er einn af eigendum Crossfit Reykjavík sem hefur aðsetur í Skeifunni. Þar mun hún starfa sem þjálfari næsta árið.


Tengdar fréttir

Annie Mist komin í fyrsta sæti

Annie Mist Þórisdóttir er í fyrsta sæti í kvennaflokki á heimsmeistaramótinu Reebok CrossFit Games. Síðasti dagur mótsins fer fram í dag. Síðan á miðvikudag hafa keppendur tekið þátt í ýmsum þrautum og framan af gekk Annie ekki sérlega vel. Á föstudaginn og í gær náði aftur á móti hún góðum sprettum, skaut sér upp stigatöfluna og upp í fyrsta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×