Efsta sætið tryggt | Ísland mætir Serbum eða Ungverjum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. ágúst 2012 08:00 Mynd/Valli
Eftir magnaðan eins marks sigur íslenska karlalandsliðsins í handknattleik á Frökkum í A-riðli handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í gær er ljóst að efsta sæti riðilsins er Íslendinga. Strákarnir okkar eiga enn eftir að mæta Bretum í lokaleik sínum í riðlinum. Jafnvel þótt íslensku strákarnir töpuðu þeim leik, sem ekki einu sinni svartsýnustu menn telja mögulegt, yrðu þeir áfram í efsta sæti riðilsins. Ísland mætir annaðhvort Serbum eða Ungverjum í átta liða úrslitum á miðvikudag en nánari útlistanir á því hvers vegna svo er má lesa um hér að neðan. Íslenska liðið hefur átta stig en sigurvegarinn úr viðureign Frakka og Svía á morgun nær liðinu að stigum. Báðar þjóðir hafa mun betri markatölu en íslenska liðið en það kemur ekki að sök. Íslenska liðið vann sigur í viðureignum sínum gegn báðum þjóðum og stendur því betur að vígi í innbyrðisviðureignum sínum. Efsta sætið í A-riðli mætir liðinu sem hafnar í fjórða sæti í B-riðli í átta liða úrslitum. Ljóst er að Króatía, Spánn og Danmörk hafna í þremur efstu sætum B-riðils auk þess sem Suður-Kórea hafnar í neðsta sæti óháð úrslitum morgundagsins. Því geta Íslendingar aðeins mætt Ungverjum eða Serbum í átta liða úrslitum á miðvikudag. Bæði lið hafa tvö stig sem stendur og mætast í hreinum úrslitaleik um 4. sætið í B-riðli á morgun, mánudag. Jafntefli dugar Ungverjum sem hafa betri markatölu en Serbarnir. Sigurvegarinn úr viðureign Íslendinga gegn Serbum/Ungverjum í átta liða úrslitum mætir sigurvegaranum úr viðureign liðsins sem hafnar í 3. sæti í A-riðli (riðli Íslands) og 2. sæti í B-riðli í undanúrslitum. Leikur Ungverja og Serba fer fram klukkan 8:30 í fyrramálið svo handboltaunnendur ættu að geta kynnt sér mótherja Íslendinga vel. Leikur Íslendinga og Breta hefst svo klukkan 15.15.
Handbolti Tengdar fréttir Íslendingar í skýjunum á Facebook og Twitter Íslendingar hafa heldur betur látið gleði sína í ljós á samskiptamiðlunum Facebook og Twitter eftir að Íslendingar unnu Frakka í hörkuspennandi leik á Ólympíuleikunum í kvöld. Ísland marði sigur 30 - 29 en með sigrinum er ljóst að Íslendingar unnu A-riðil á leikunum. Glæsileg frammistaða. 4. ágúst 2012 20:30 Leik lokið: Ísland - Frakkland 30-29 | Stórkostlegur íslenskur sigur Ísland vann í kvöld stórkostlegan eins marks sigur, 30-29 á Ólympíumeisturum Frakka. Íslenska liðið spilaði frábærlega í leiknum, bæði í vörn og sókn og vann að lokum verðskuldað eftir taugatrekkjandi lokamínútur. Ísland mun því enda í efsta sæti riðilsins og er komið í átta liða úrslit keppninnar. 4. ágúst 2012 17:45 Mest lesið Bein útsending: Átta hlaupa inn í nóttina Sport Stærsta lið Noregs í þrot Handbolti „Dæmið okkur eftir eftir næstu sjö leiki“ Fótbolti Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“ Sport FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann Fótbolti „Ég trúi þessu ekki ennþá“ Fótbolti „Ég reyndi að standa mig eins og í öllum öðrum leikjum“ Íslenski boltinn Íslenska ofurfólkið sem keppir á HM í bakgarðshlaupi Sport Leclerc fyrstur í mark í Texas Formúla 1 Uppgjörið: HK - Fram 2-1 | Flautumark heldur vonum HK á lífi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stærsta lið Noregs í þrot Uppgjörið: Haukar - Cocks 35-26 | Haukar fara með gott veganesti til Finnlands 23 íslensk mörk þegar Magdeburg vann Leipzig Strákarnir hans Gumma Gumm með fimmta sigurinn í röð Dana Björg markahæst í sigurleik Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð Elvar skoraði sex þegar Melsungen fór á toppinn Grótta náði í stig gegn meisturum FH Ýmir dýrmætur í fyrsta sigrinum Fjölnir nálægt því sem Porto tókst ekki en Valskonur á siglingu Guðjón og Elliði fögnuðu áfram eftir Íslandsför Sjáðu ótrúlegt mark Sigvalda í Meistaradeildinni KA og ÍR fögnuðu eftir spennu Orri magnaður í frábærum sigri Kristján rifbeinsbrotnaði: „Fannst þetta klárt rautt spjald“ Aron aftur til Veszprém eftir stormasaman viðskilnað Íslensk upprisa dugði ekki til og Bjarki fagnaði gegn löndum sínum Uppgjörið: Afturelding - ÍBV 38-27 | Mosfellingar á toppinn með stórsigri Sandra í landsliðinu þremur mánuðum eftir barnsburð Aron Dagur í Kópavoginn Allt jafnt á Ásvöllum Selfoss upp fyrir Stjörnuna Slæmt gengi Magdeburg í Evrópu heldur áfram Óaðfinnanleg Elín Klara skaut Haukum upp í þriðja sætið Uppgjörið: Fram - ÍBV 29-20 | Öruggur heimasigur Landsliðshetjan í áfalli: Ég skelf öll „Stór partur af mér sem persónu“ „Við vorum bara niðurlægðir“ „Æðislegt að sjá svona marga Íslendinga sem halda með okkur“ Þorsteinn Leó: Ég sá að stúkan var hálf blá Sjá meira
Íslendingar í skýjunum á Facebook og Twitter Íslendingar hafa heldur betur látið gleði sína í ljós á samskiptamiðlunum Facebook og Twitter eftir að Íslendingar unnu Frakka í hörkuspennandi leik á Ólympíuleikunum í kvöld. Ísland marði sigur 30 - 29 en með sigrinum er ljóst að Íslendingar unnu A-riðil á leikunum. Glæsileg frammistaða. 4. ágúst 2012 20:30
Leik lokið: Ísland - Frakkland 30-29 | Stórkostlegur íslenskur sigur Ísland vann í kvöld stórkostlegan eins marks sigur, 30-29 á Ólympíumeisturum Frakka. Íslenska liðið spilaði frábærlega í leiknum, bæði í vörn og sókn og vann að lokum verðskuldað eftir taugatrekkjandi lokamínútur. Ísland mun því enda í efsta sæti riðilsins og er komið í átta liða úrslit keppninnar. 4. ágúst 2012 17:45