Kim Andersson: Dómararnir gerðu okkur erfitt fyrir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. ágúst 2012 22:41 Andersson, númer fimm, fylgist með Aroni Pálmarssyni skora eitt níu marka sinna í leiknum. Mynd/Valli
Svíar voru allt annað en sáttir með dómgæsluna í 33-32 tapinu gegn Íslendingum í B-riðli handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í London í kvöld. Í stöðunni 32-31 og mínúta til leiksloka brunuðu Svíar í hraðaupphlaup. Alexander Petersson fiskaði hins vegar ruðning á Dalibor Doder við lítinn fögnuð Svíanna. Íslendingar fóru í kjölfarið í sókn. Svíar opnuðu leið fyrir Ásgeir Örn Hallgrímson sem fór þó ekki inn. Ótrúlegt nokk dæmdu dómararnir ekki leiktöf á Ísland en nokkrum sekúndum síðar fór Ásgeir Örn inn úr sama færi og tryggði Íslandi sigur. „Dómararnir gerðu okkur erfitt fyrir og við fengum að kenna á skrýtnum ákvörðunum. Þannig varð þetta brött brekka að klífa," sagði Kim Andersson stórskytta Svía í leikslok. „Það er erfitt að berjast þegar dómararnir flauta á brot sem var ekki einu sinni dæmt á í yngri flokkum. En það þýðir lítið að væla yfir dómurunum," sagði Andersson. Sænsku leikmennirnir voru í þrígang reknir af velli með tveggja mínútna brottvísun en íslensku strákarnir átta sinnum. Í eitt skiptið var þó algjörlega við íslensku leikmennina að sakast þar sem þeir gerðu mistök í skiptingu sinni og voru einum of margir inni á vellinum. Svíar mæta Argentínu á laugardag og Andersson er klár í slaginn fyrir þann leik. „Þeir eru alls ekki lélegt lið. En með sigri tryggjum við okkur sæti í átta liða úrslitum bikarsins," sagði Andersson svekktur í leikslok. Staffan Olson, annar af þjálfurum Svía, hrósaði sínum mönnum fyrir að hafa saxað á forskot Íslands í síðari hálfleiknum. „Við sýndum baráttuanda með því að koma okkur aftur inn í leikinn," sagði Olsson sem var þó ósáttur við fjölda tæknimistaka sinna manna. „Íslendingarnir refsa fyrir slík mistök og eru ótrúlega góðir í því. Við megum ekki gera okkur seka um þess lags mistök," sagði Olsson.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Átta hlaupa inn í nóttina Sport Stærsta lið Noregs í þrot Handbolti „Dæmið okkur eftir eftir næstu sjö leiki“ Fótbolti FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann Fótbolti „Ég trúi þessu ekki ennþá“ Fótbolti „Ég reyndi að standa mig eins og í öllum öðrum leikjum“ Íslenski boltinn Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“ Sport Leclerc fyrstur í mark í Texas Formúla 1 Uppgjörið: HK - Fram 2-1 | Flautumark heldur vonum HK á lífi Íslenski boltinn Íslenska ofurfólkið sem keppir á HM í bakgarðshlaupi Sport Fleiri fréttir Stærsta lið Noregs í þrot Uppgjörið: Haukar - Cocks 35-26 | Haukar fara með gott veganesti til Finnlands 23 íslensk mörk þegar Magdeburg vann Leipzig Strákarnir hans Gumma Gumm með fimmta sigurinn í röð Dana Björg markahæst í sigurleik Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð Elvar skoraði sex þegar Melsungen fór á toppinn Grótta náði í stig gegn meisturum FH Ýmir dýrmætur í fyrsta sigrinum Fjölnir nálægt því sem Porto tókst ekki en Valskonur á siglingu Guðjón og Elliði fögnuðu áfram eftir Íslandsför Sjáðu ótrúlegt mark Sigvalda í Meistaradeildinni KA og ÍR fögnuðu eftir spennu Orri magnaður í frábærum sigri Kristján rifbeinsbrotnaði: „Fannst þetta klárt rautt spjald“ Aron aftur til Veszprém eftir stormasaman viðskilnað Íslensk upprisa dugði ekki til og Bjarki fagnaði gegn löndum sínum Uppgjörið: Afturelding - ÍBV 38-27 | Mosfellingar á toppinn með stórsigri Sandra í landsliðinu þremur mánuðum eftir barnsburð Aron Dagur í Kópavoginn Allt jafnt á Ásvöllum Selfoss upp fyrir Stjörnuna Slæmt gengi Magdeburg í Evrópu heldur áfram Óaðfinnanleg Elín Klara skaut Haukum upp í þriðja sætið Uppgjörið: Fram - ÍBV 29-20 | Öruggur heimasigur Landsliðshetjan í áfalli: Ég skelf öll „Stór partur af mér sem persónu“ „Við vorum bara niðurlægðir“ „Æðislegt að sjá svona marga Íslendinga sem halda með okkur“ Þorsteinn Leó: Ég sá að stúkan var hálf blá Sjá meira