Spilastokk hent á loft og dregið um röð atriðanna 21. ágúst 2012 21:30 Hannes Óli, Vignir og Melkorka eru aðstandendur sýningarinnar 52 sem er frumsýnd er annað kvöld.
Ástarsamband karls og konu er umfjöllunarefni leikritsins 52 sem verður frumsýnt annað kvöld. Uppbygging verksins er óvenjuleg en tilviljun ræður í hvaða röð senur verksins eru fluttar. "Leikritið 52 er samansett úr 52 senum sem spanna allt samband söguhetjanna tveggja, frá því að þau kynnast og þar til að tvö ár eru liðin frá skilnaði þeirra," segir Hannes Óli Ágústsson, annar tveggja leikara verksins 52 sem frumsýnt verður í Gym & Tonic salnum á Kexi annað kvöld. Auk Hannesar Óla standa að verkinu þau Melkora Óskarsdóttir sem fer með kvenhlutverk verksins og þýðir það að auki og Vignir Rafn Valþórsson sem leikstýrir verkinu. Uppbygging verksins er ekki hefðbundin og hún veldur því að engar tvær sýningar verða eins. "Í upphafi leikritsins köstum við spilastokk á loft, á hvert spil er ritað nafn atriðis úr verkinu og atriðin eru leikin í þeirri röð sem við drögum spilin upp af gólfinu. Það er þannig tilviljunum háð í hvaða röð þau eru leikin. Áhorfendur fylgjast þannig með sambandi söguhetjanna í brotakenndri röð, sem er mjög áhugavert og rímar við minningar fólks, þær eru ekki endilega í tímaröð með skipulögðu upphafi og endi," segir Hannes Óli sem segir krefjandi og þroskandi að leika í verkinu. ''Og verkið er mjög skemmtilegt. Áhorfendur tengja örugglega vel við senurnar í verkinu sem spanna allt frá vandræðalegum fyrstu kynnum, rifrildum pars um ekki neitt, símtöl og eftirmála sambandsins." Hannes Óli og Melkorka eru gamlir vinir og höfðu lengi leitað að verki til að setja upp saman. "Mel korka frétti svo af þessu leikriti sem er kanadískt verðlaunaverk eftir T. J. Dawe og Ritu Bozi. Við settum okkur í samband við höfundana sem tóku okkur vel," segir Hannes Óli. "Við fengum svo Vigni Rafn til liðs við okkur en hann leikstýrir verkinu, við erum gamlir vinir og höfum áður unnið saman." Tvær sýningar eru áætlaðar á 52. Sú fyrri er á morgun klukkan sex í Gym & Tonic-salnum á Kexi sem fyrr sagði og hin síðari er á föstudag á sama tíma.sigridur@frettabladid.is
Menning Mest lesið Lil Curly og Brynja ekki lengur bara vinir Lífið Vala Grand gengin út Lífið Brad Pitt stoppaði í hamborgara í Dalakofanum Lífið Hleypur hálfmaraþon fyrir Sindra: „Það sem skiptir máli er að klára þetta fyrir Sindra“ Lífið Segist standa með Helga Magnúsi gegn hótunum Lífið Fjögur börn og trúlofun hjá Evu Dögg Lífið Stjörnulífið: Stjörnubrúðkaup og Áslaug Arna í golfi Lífið Frægir kynnar á ráðstefnu Demókrata Lífið Litla Melabúðin slær í gegn hjá Vesturbæingum Lífið Byrjaði í smábrotum en vatt svo upp á sig Lífið Fleiri fréttir Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Allt á fullri ferð á Húsavík um helgina Guðrún Jóhanna nýr skólastjóri Söngskólans Umræða um feðraveldi og karlrembu skekur djassbransann Útlit fyrir bíólausa Akureyri Komið að endalokum eftir 25 ár Kanónur með listræna þrennu á Flateyri „Leiðin verður að vera óviss svo vel sé“ „Ég lofa miklu blóði“ Gera grín að bransanum með „virtustu verðlaunum heims“ Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar Sjá meira