Síminn stoppaði ekki í fimm ár 9. nóvember 2012 15:00 MYNDIR / SAGAFILM & LANDSBJÖRG
Þáttaröðin Íslensku björgunarsveitirnar hefst á sunnudaginn næsta á RÚV. Þættirnir eru fjórir talsins, koma úr smiðju Sagafilm og hafa verið fimm ár í vinnslu. Þáttaröðin fjallar um íslensku björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar og störf þeirra. Í gegnum þá er veitt innsýn inn í líf og störf björgunarsveitarfólks og áhorfendur leiddir í allan sannleikann um hvað gengur á í stórum og umfangsmiklum björgunaraðgerðum. Sagafilm hefur fylgst með björgunarsveitunum í fimm ár og myndað valin útköll á því tímabili. Útköll á björgunarsveitir eru að meðaltali 2 til 3 daglega á landsvísu og oft er um að ræða aðgerðir þar sem um líf eða dauða er að tefla. Ótrúlega mikið og öflugt starf liggur að baki sterkri björgunarsveit en starfið er sjálfboðaliðastarf og eru hátt í 4000 manns á útkallsskrá á landsvísu. Um 18.000 einstaklingar eru meðlimir í samtökunum Slysavarnafélagið Landsbjörg sem gerir það eitt af stærstu sjálfboðaliðasamtökum á Íslandi. Framleiðendur og leikstjóri þáttanna ákváðu í upphafi þessa metnaðarfulla verkefnis að fara á útkallsskrá íslensku björgunarsveitanna og því hefur síminn þeirra ekki stoppað síðustu fimm árin. Nú býr Sagafilm yfir 350 klukkustundum af myndefni frá á annað hundrað útköllum víðs vegar um landið á tímabilinu ágúst 2007 til ágúst 2012. Er óhætt að fullyrða að þetta sé eitt stærsta verkefni framleiðslufyrirtækisins til þessa.Facebook-síða Sagafilm
Menning Mest lesið Lil Curly og Brynja ekki lengur bara vinir Lífið Vala Grand gengin út Lífið Brad Pitt stoppaði í hamborgara í Dalakofanum Lífið Hleypur hálfmaraþon fyrir Sindra: „Það sem skiptir máli er að klára þetta fyrir Sindra“ Lífið Segist standa með Helga Magnúsi gegn hótunum Lífið Fjögur börn og trúlofun hjá Evu Dögg Lífið Stjörnulífið: Stjörnubrúðkaup og Áslaug Arna í golfi Lífið Frægir kynnar á ráðstefnu Demókrata Lífið Litla Melabúðin slær í gegn hjá Vesturbæingum Lífið Byrjaði í smábrotum en vatt svo upp á sig Lífið Fleiri fréttir Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Allt á fullri ferð á Húsavík um helgina Guðrún Jóhanna nýr skólastjóri Söngskólans Umræða um feðraveldi og karlrembu skekur djassbransann Útlit fyrir bíólausa Akureyri Komið að endalokum eftir 25 ár Kanónur með listræna þrennu á Flateyri „Leiðin verður að vera óviss svo vel sé“ „Ég lofa miklu blóði“ Gera grín að bransanum með „virtustu verðlaunum heims“ Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar Sjá meira