Erlent

Greiddi atkvæði á leiðinni á fæðingardeildina

MYND/AFP
Hin 21 ára gamla Galicia Malone var staðráðin í að greiða atkvæði í forsetakosningunum í dag. Svo ákveðin var hún að barnsburður aftraði henni ekki frá því að koma við á kjörstað.

Galcia var sótt á heimili sitt í Dolton í Illinois í gær. Tíminn var naumur. Samdrættirnir komu á fimm mínútna fresti og því var ákveðið að hraða Galiciu á næsta sjúkrahús.

Þetta var fyrsta barn Galiciu og jafnframt fyrstu forsetakosningar hennar.

„Ég hafði aldrei kosið áður," sagði Galicia í samtali við fréttastofu WBBM í Chicago. „Og ég vildi setja dóttur minni gott fordæmi."

Hún heimtaði að koma við á kjörstað og greiða atkvæði: „Ég reyndi að lesa af kjörseðlinum. Ég andaði og las, andaði og las."

Og það gerði hún. Ekki fylgir sögunni hvor frambjóðandinn hlaut atkvæði Galiciu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×