Menning

Draumur hafsins afhjúpaður

Málverkið Draumur hafsins sem Rafaella Brizuela Sigurðardóttir bjó til er tilbúið.
Málverkið Draumur hafsins sem Rafaella Brizuela Sigurðardóttir bjó til er tilbúið. Fréttablaðið/Stefán
"Ég er mjög ánægð með þetta. Þetta hefur allt heppnast ofsalega vel," segir Rafaella Brizuela Sigurðardóttir.

Hún hefur lokið við risastórt málverk, sem kallast Draumur hafsins, á hundrað fermetra húsgafl á Laugavegi 159.

Verkefnið hófst í byrjun september, eins og Fréttablaðið hefur greint frá, og lauk í gær. Af því tilefni var haldið partí við listaverkið þar sem boðið var upp á heitt kakó, pinnamat og ís, auk þess sem DJ Margeir þeytti skífum.

Hugmyndin á bak við listaverkið kemur úr gamalli persneskri sögu úr bahái-trúnni og einnig úr íslenskri menningu. Rafaella málaði fiska, haf og síðhærða stúlku á vegginn með aðstoð góðs fólks.

"Ég gerði fiskana, sjóinn og hárið fyrst. En um leið og stelpan var komin á málverkið byrjaði fólk að stoppa og skoða og spyrja. Mörgum finnst þetta ótrúlega flott."

Rafallea er með nýtt verkefni í bígerð sem verður ef allt gengur að óskum unnið á Húsavík.

"Það voru strákar sem brutust inn til konu á Húsavík. Hún talaði við þessa stráka og foreldra þeirra og hugsaði svo með sér hvernig það væri að bjóða þessum krökkum að taka þátt í verkefni næsta sumar. Þau eru búin að finna vegg og vilja fá mig til að gera einhverja skemmtilega mynd með þeim," segir Rafaella, sem tekur fram að verkefnið sé á byrjunarstigi.

- fb

Rafaella vígði verkið og klippti á borðann við fögnuð viðstaddra.
Verkið stendur við Laugaveg, rétt fyrir ofan Hlemm.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.