Guðjón Valur og Alexander tilnefndir í stjörnuliðið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. nóvember 2012 16:45 Guðjón Valur Sigurðsson. Nordic Photos / Getty Images
Á mánudag hefst kosning fyrir stjörnuleik þýsku úrvalsdeildarinnar og eru minnst tveir íslenskir leikmenn meðal þeirra tilnefndu. Reyndar er aðeins búinn að tilkynna þá sem koma til greina í fjórum flokkum - vinstri hornamenn, vinstri skyttur, leikstjórnendur og hægri skyttur. Enn á eftir að tilnefna þjálfara sem og markverði, línumenn og hægri hornamenn. Guðjón Valur Sigurðsson er einn sex leikmanna sem eru tilnefndir í flokki vinstri hornamanna og Alexander Petersson, leikmaður Rhein-Neckar Löwen, í flokki hægri skyttna. Guðjón Valur leikur með Kiel en Stefan Kretzschmar, fyrrum landsliðsmaður Þjóðverja, lofaði hann mjög í samantektarmyndbandi um þá tilnefndu sem má sjá hér fyrir ofan. „Sigurðsson hefur spilað í hæsta klassa í mörg ár. Hann er leikmaður í heimsklassa sem hefur ekki aðeins spilað vel einstaka tímabil heldur í fjöldamörg ár." „Ég tel að það sé ekki til betri fagmaður í handbolta en hann. Allt sem hann gerir tekur mið af handboltanum. Hann er þess fyrir utan mjög viðkunnalegur maður sem maður vildi gjarnan vera með í sínu liði," sagði Kretzschmar. Torsten Jansen, leikmaður þýska landsliðsins, segir sitt álit á þeim sem eru tilnefndir í stöðu hægri skyttna. „Alex er í mínum huga fullgerður leikmaður, bæði í sókn og vörn. Það er alltaf mjög óþægilegt að spila gegn honum, af því að hann getur skorað mörk þegar flestir telja að það sé ekki hægt lengur. Ég tel hann sigurstranglegastan í þessum flokki," sagði Jansen. Nánari upplýsingar um kjörið má finna hér en stjörnuliðið mætir þýska landsliðinu í febrúar næstkomandi. Tveir stigahæstu leikmennirnir úr hverri stöðu verða í stjörnuliðinu. Tveir þjálfarar munu stýra liðinu - sá sem hlýtur flest atkvæði í kjörinu og annar sem þjálfarar úrvalsdeildarliðanna átján tilnefna. Þjálfararnir geta svo valið þriðja leikmanninn í hverri stöðu.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Fimm eftir í morgunsárið Sport Arnar Gunnlaugsson í banni í úrslitaleiknum Fótbolti „Hefði látið Elías Inga blása og er ekki viss um að hann hefði fengið keyra heim“ Íslenski boltinn Stærsta lið Noregs í þrot Handbolti „Dæmið okkur eftir eftir næstu sjö leiki“ Fótbolti Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“ Sport FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann Fótbolti Körfuboltakvöld: Áhyggjur af Álftanesi Körfubolti „Ég trúi þessu ekki ennþá“ Íslenski boltinn Stjarna Leverkusen á spítala eftir árekstur við vörubíl Fótbolti Fleiri fréttir Stærsta lið Noregs í þrot Uppgjörið: Haukar - Cocks 35-26 | Haukar fara með gott veganesti til Finnlands 23 íslensk mörk þegar Magdeburg vann Leipzig Strákarnir hans Gumma Gumm með fimmta sigurinn í röð Dana Björg markahæst í sigurleik Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð Elvar skoraði sex þegar Melsungen fór á toppinn Grótta náði í stig gegn meisturum FH Ýmir dýrmætur í fyrsta sigrinum Fjölnir nálægt því sem Porto tókst ekki en Valskonur á siglingu Guðjón og Elliði fögnuðu áfram eftir Íslandsför Sjáðu ótrúlegt mark Sigvalda í Meistaradeildinni KA og ÍR fögnuðu eftir spennu Orri magnaður í frábærum sigri Kristján rifbeinsbrotnaði: „Fannst þetta klárt rautt spjald“ Aron aftur til Veszprém eftir stormasaman viðskilnað Íslensk upprisa dugði ekki til og Bjarki fagnaði gegn löndum sínum Uppgjörið: Afturelding - ÍBV 38-27 | Mosfellingar á toppinn með stórsigri Sandra í landsliðinu þremur mánuðum eftir barnsburð Aron Dagur í Kópavoginn Allt jafnt á Ásvöllum Selfoss upp fyrir Stjörnuna Slæmt gengi Magdeburg í Evrópu heldur áfram Óaðfinnanleg Elín Klara skaut Haukum upp í þriðja sætið Uppgjörið: Fram - ÍBV 29-20 | Öruggur heimasigur Landsliðshetjan í áfalli: Ég skelf öll „Stór partur af mér sem persónu“ „Við vorum bara niðurlægðir“ „Æðislegt að sjá svona marga Íslendinga sem halda með okkur“ Þorsteinn Leó: Ég sá að stúkan var hálf blá Sjá meira