Innlent

66 prósent landsmanna gáfu bók í jólagjöf í fyrra

Félag íslenskra bókaútgefenda hefur um allnokkurt skeið látið kanna viðhorf Íslendinga til bókamarkaðarins í upphafi hvers árs.

Niðurstöður úr þeim könnunum sýna að á bilinu 60-70% Íslendinga hafa keypt bækur til jólagjafa alla 21. öldina.

Árið 2012 kváðust 66,6% Íslendinga hafa keypt bók til jólagjafa jólin 2011 samkvæmt könnun Capacent-Gallup. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félagi íslenskra bókaútgefenda.

„Bókatíðindi 2012 eru að því leyti söguleg að aldrei hafa verið þar jafn margar skráningar á titlum og nú. Alls er 842 titlar skráðir í Bókatíðindi en voru 405 árið 1991 þegar Bókatíðindi komu fyrst út í núverandi broti.

Aukningin skýrist að miklu leyti af því að bækur kom nú út í fleiri myndum en á síðustu öld. Nær allar skáldsögur, innlendar sem erlendar, sem komið hafa út í harðspjaldaútgáfu koma nú út í kilju og hljóðbókaútgáfur og rafbókaútgáfur sömu titla eru æ oftar gefnar út um svipað leyti og innbundna útgáfan.

Aukningin skýrist einnig af auknum fjölda þýddra barnabóka. Sá flokkur hefur sveiflast mest allra flokka í Bókatíðindum undanfarin ár og er raunar eini flokkur bóka sem bankahrunið 2008 hafði marktæk áhrif á. Útgáfa þýddra barnabóka eykst nú aftur að nýju.

Ævisögur hafa aðeins einu sinni frá því á níunda áratugnum verið jafn fáar og nú. Svo virðist sem færri útgefendur leggi kapp á útgáfu ævisagna þessi misserin en lögum fyrr þegar ævisögur voru jafnan vinsælustu bækurnar hver jól," segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×