Menning

Leita styrkja fyrir sýningarferð

Dagur túlkar og skrifar leikritið Pabbi er dáinn, sem hann vonast til að sýna á fimmtán stöðum um landið.
Dagur túlkar og skrifar leikritið Pabbi er dáinn, sem hann vonast til að sýna á fimmtán stöðum um landið.
„Við nennum ekki að sitja heima og bora í nefið,“ segir leiklistarneminn Dagur Snær Sævarsson, eða Daily Snow líkt og hann er kallaður erlendis, sem ferðast um landið í sumar með frumsaminn einleik ásamt Magnúsi Þór Ólafssyni gítarleikara. Dagur nemur leiklist við leiklistarskólann í Holberg og Magnús er á kandídatsári við Konunglega danska Konservatoríið. Leikritið ber heitið Pabbi er dáinn og er fyrsta leikritun Dags. Verkið segir frá 26 ára gömlum Kára sem vitjar leiðis föður síns, mánuði eftir andlát hans, til að tala við hann eftir tuttugu ára aðskilnað.

„Hér er litla vinnu að fá og þetta var hið eina sem kom til greina,“ segir Dagur um ástæðu hringferðarinnar. „Við viljum kynna okkar vinnu fyrir Íslendingum og safna í leiðinni peningum fyrir áframhaldandi námi.“ Stefna þeir á að sýna á fimmtán stöðum víðs vegar um landið á tímabilinu 14. júlí til 8. ágúst og er ókeypis inn á flestar sýningar. Að leggja upp í slíka sýningarferð er kostnaðarsamt. „Við höfum leitað að styrkjum hjá sjóðum og fyrirtækjum en því miður eru ekki mörg fyrirtæki spennt fyrir því að styrkja óþekkta nema,“ segir Dagur, sem leitar því til almennings við fjáröflunina. „Ef 700 manns styrkja okkur um þúsund krónur verður ferðin möguleg.“

Listnemarnir munu yfir sumarið setja þætti á veraldarvefinn þar sem fylgjast má með framleiðslunni, æfingum, og svo loks hringferðinni sjálfri. - hþt






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.