Lífið

Litrík jól í ár

Þórdís Harpa Lárusdóttir, flugfreyja og fagurkeri með jólakransinn sinn.
Þórdís Harpa Lárusdóttir, flugfreyja og fagurkeri með jólakransinn sinn.
Styttist nú óðum í aðventu þessa árs. Ýmsar eru hefðirnar en meðal þeirra er að gera aðventukrans. Hér áður fyrr voru þeir heldur einfaldir en í dag fylgja þeir tískustraumum eins og flest annað. Vissulega halda margir í hefðirnar á meðan aðrir leyfa hugmyndafluginu að njóta sín á hverju ári.

Þórdís Harpa Lárusdóttir, flugfreyja og fagurkeri sýndi Lífinu einfaldan en afar skemmtilegan og jólalegan krans sem hún var að leggja lokahönd á.



Ertu mikið jólabarn? Ég er agalega mikið jólabarn og skreyti húsið hátt og lágt, þannig að það breytir gjörsamlega um ásýnd, er dugleg að taka hluti úr umferð og set aðra jóla inn í staðinn.

Byrjarðu snemma að undirbúá jólin? Já, ég skreyti frekar tímanlega og er svo tiltölulega fljót að taka jólin niður í byrjun janúar. Ég er búin að lifa og hrærast í verslunarrekstri í mörg ár en ætla núna að njóta jólanna og aðdragandan í botn með börnunum mínum í ró og næði.

Hvaða þema er hjá þér í ár? Undanfarin ár er ég búin að vera með mjög mikið um náttúruliti í skreytingunum mínum, aðallega hvítt, silfur og brúnt. En í ár datt ég í rauða litinn og finnst voða gaman að hafa grænan með, mig langar að hafa litrík og kósý jól í ár.

Segðu okkur aðeins frá fallega kransinum? Stóri hvíti bakkinn er úr Ilvu, silfur bakkinn hefur fylgt mér lengi,kertin og hjörtun eru úr Ikea, silfurkúlurnar eru héðan og þaðan og hnotubrjótarnir eru úr Crate&barrel. Einfalt og fljótlegt.

Þessi skemmtilegu kerti sem eru merkt aðventuvikunum eru úr Ikea Ljósmyndir/Tinna Stefánsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×