Leikarinn Hugh Laurie er í viðræðum um að leika illmennið í endurgerð á myndinni RoboCop. Laurie ku hafa mikinn áhuga á hlutverkinu en myndinni er leikstýrt af Jose Padilha.
Tæki Laurie hlutverkið yrði það í fyrsta sinn sem hann sæist á hvíta tjaldinu síðan sjónvarpsþáttunum vinsælu um House lauk nýverið. Aðrir leikarar sem búnir eru að samþykkja að leika í myndinni eru Gary Oldman, Joel Kinnaman, Abby Cornish og Samuel L. Jackson. Myndin á að byrja í tökum í haust og áætluð frumsýning er sumarið 2013.

