Erlent

Komst undan með klinkhaug

Mynt Ræninginn slapp með um 30.000 danskar krónur, nær allt var í smámynt.
Mynt Ræninginn slapp með um 30.000 danskar krónur, nær allt var í smámynt.
Grímuklæddur ræningi komst undan á hjóli eftir að hafa rænt kjörbúð í Vissenberg á Fjóni í fyrrakvöld. Hann bar þungar klyfjar á flóttanum enda var meginþorri ránsfengsins, 30 þúsund danskra króna, í smámynt.

Ræninginn ógnaði ungri starfsstúlku og þvingaði hana til að opna peningahirslu þar sem fjármunirnir voru. Eftir það batt hann stúlkuna og hélt á brott.

Myndir náðust af ræningjanum og stúlkan gat auk þess lýst vexti mannsins og klæðnaði. Lögreglan á Fjóni rannsakar málið.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×