Lífið

Jón Kaldal ritstýrir nýju blaði

„Þetta er verkefni sem ég hef lengi haft á bakvið eyrað og talið þörf á að ýta úr höfn. Heimur, útgefandi Iceland Review, var sammála því svo við ákváðum í sameiningu að slá til," segir Jón Kaldal ritstjóri Iceland Review Street edition, nýs blaðs sem kemur út í fyrsta skipti 20.júlí næstkomandi.

Iceland Review Street edition er fríblað á dagblaðsformi og mun koma út á tveggja vikna fresti.

„Þetta er blað á ensku og fyrst og fremst hugsað fyrir þann mikla fjölda ferðamanna sem heimsækja landið ár hvert. Samkvæmt könnunum er meðalaldur ferðamanna hérlendis um fertugt og átta af hverjum tíu segja helstu ástæðu ferðarinnar vera að sjá náttúru og landslag Íslands," segir Jón, sem ritstýrði áður Fréttatímanum og þar áður Fréttablaðinu.

„Auðvitað hefur fólk alltaf áhuga á fólki svo við verðum með menningartengda umfjöllun líka. Hinn almenni ferðamaður hefur þó meiri áhuga á að vita hvar tíu bestu náttúrulaugarnar eru en tíu bestu barirnir svo við ætlum að sinna þeirri hlið eins vel og við getum," bætir hann við.

Iceland Review tímaritið hefur verið leiðandi í enskri umfjöllun um Ísland frá því það var stofnað árið 1963. Það er með þúsundir áskrifenda um allan heim og heimasíðan þeirra er ein mest sótta síðan um Ísland á ensku. Þar sem það tímarit er prentað á glanspappír, kemur út fjórum til fimm sinnum á ári og er sölublað telur Jón þetta nýja blað þó ekki ógna stöðu þess á markaðinum.

„Við lítum á þetta blað sem góða og þarfa viðbót. Því verður dreift í 25.000 eintökum á þá staði þar sem fólk er helst á ferðinni, bæði úti á landsbygðinni og á höfuðborgarsvæðinu, og er hugsað til þess að hjálpa fólki að kynnast Íslandi betur," segir hann að lokum. - trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.