Körfubolti

Tap hjá Brynjari og félögum í Jämtland

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Brynjar Þór Björnsson.
Brynjar Þór Björnsson. Mynd/Vilhelm
Brynjar Þór Björnsson og félagar í Jämtland Basket þurftu að sætta sig við naumt 79-81 tap á útivelli á móti LF Basket í sænska körfuboltanum í kvöld. Jämtland var yfir stóran hluta leiksins en missti leikinn frá sér í lokin.

Brynjar Þór skoraði 7 stig í leiknum og þar á meðal var þriggja stiga karfa 96 sekúndum fyrir leikslok sem jafnaði leikinn í 79-79. LF Basket tryggði sér síðan sigurinn með því að setja niður tvö víti 54 sekúndum fyrir leikslok en Brynjar tókst ekki að nýta síðasta skotið sitt í leiknum.

Brynjar lék í 23 mínútur í leiknum og hitti úr 2 af 3 þriggja stiga skotum sínum en hann stal líka einum bolta á lokasekúndum leiksins.

Jämtland Basket vann annan leikhlutann 28-17 og var með sjö stiga forskot í hálfleik, 48-41.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×