Stígandi í sölunni 19. desember 2012 06:00 Bjarni Sigurðsson eigandi Smiðjunnar.
Jólasýning með verkum margra þjóðþekktra listamanna stendur nú yfir í Smiðjunni Listhúsi að Ármúla 36. „Margir kaupa íslenska myndlist á þessum árstíma og því er talsvert að gera. Fólk vill gera fínt hjá sér og jafnvel breyta aðeins til. Málverk eru falleg og áberandi á heimilum og það er nokkuð algengt að hjón kaupi sér málverk saman og gefi sér í jólagjöf," segir Bjarni Sigurðsson, eigandi Smiðjunnar. Bjarni segir að sala á íslenskri myndlist sé á uppleið eftir talsverða lægð í kjölfar bankahrunsins. „Það er stígandi í listaverkasölunni á þessu ári og mér finnst talsvert meira af dýrari verkum seljast en síðustu þrjú til fjögur ár. Myndlist eftir þekkta málara er góð fjárfesting, ekki síst í kreppu, og stenst tímans tönn," segir Bjarni. Hann segir að gömlu meistararnir séu ávallt mjög vinsælir og sömuleiðis margir yngri listamenn. „Þetta skiptist nú nokkurn veginn jafnt hvað vinsældir varðar. Gömlu meistararnir eins og Kjarval, Þorvaldur Skúlason, Ásgrímur Jónsson, Svavar Guðnason og Hafsteinn Austmann njóta alltaf vinsælda og af þeim yngri má nefna Tolla, Sigurbjörn Jónsson, Valgarð Gunnarsson og Pétur Gaut."
Fréttir Menning Mest lesið Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Lífið Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lífið „Ég var dómharður og ömurlegur gæi“ Lífið Logi Bergmann var tekinn Lífið Myndaveisla: Héldu upp á tíu ára afmælið í Guðmundarlundi Lífið Fleiri fréttir Kanónur með listræna þrennu á Flateyri „Leiðin verður að vera óviss svo vel sé“ „Ég lofa miklu blóði“ Gera grín að bransanum með „virtustu verðlaunum heims“ Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira