Innlent

Einar Boom segist hættur í Vítisenglum

Einar Marteinsson segist hættur í Vítisenglum.
Einar Marteinsson segist hættur í Vítisenglum.
Einar Ingi Marteinsson, Einar Boom, er hættur í Hells Angels. Samkvæmt frásögn á DV.is hringdi Einar úr gæsluvarðhaldi í ritstjórn DV til að greina frá þessu. „Ég er hættur í Hells Angels. Ég ætla ekkert að ræða það frekar, en ég er hættur og þetta er staðfest," er haft eftir Einari og segir hann ástæðuna fyrir brotthvarfi sínu verða opinberaða síðar. Aðspurður segir Einar það vera skrítið að vera skilinn við samtökin en hann segir að þannig sé það engu að síður. Einar situr í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að árás á konu um síðustu áramót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×