Körfubolti

Jón Arnór með tólf stig í sigri á Valencia

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Vilhelm
Jón Arnór Stefánsson átti ágætan leik þegar CAI Zaragoza vann 71-63 sigur á Valencia Basket í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Þetta var þriðji sigur Zaragoza-liðsins í síðustu fjórum leikjum en liðið gerði út um leikinn í dag með því að vinna fjórða leikhlutann 23-9.

Jón Arnór var með 12 stig á 30 mínútum í leiknum en hann hitti úr báðum þriggja stiga skotum sínum og var auk stiganna með 2 fráköst og 2 stoðsendingar. Hann var þarna að mæta sínum gömlu félögum í Valencia.

Jón Arnór var þriðji stigahæsti leikmaður Zaragoza-liðsins í leiknum en Brasilíumaðurinn Rafael Hettsheimeir skoraði 17 stig og Bandaríkjamaðurinn Bracey Wright var með 15 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×