Fótbolti

Hellas Verona missti af toppsætinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Emil í leik með Hellas Verona.
Emil í leik með Hellas Verona. Nordic Photos / Getty Images
Emil Hallfreðsson og félagar í Hellas Verona hefðu getað komist á topp ítölsku B-deildarinnar í dag en máttu sætta sig við 2-0 tap fyrir Sampdoria.

Emil var að venju í byrjunarliði Hellas Verona sem er í fjórða sætinu með 54 stig, tveimur á eftir toppliðunum Torino og Pescara en bæði eiga leik til góða.

Þetta var fyrsta tap Hellas Verona síðan í lok janúar en liðið á enn góðan möguleika á að komast upp í úrvalsdeildina í vor.

Sampdoria er í tíunda sæti deildarinnar en liðið hefur verið á ágætu skriði að undanförnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×