Gylfi Þór: Vonandi fyrstu verðlaunin af mörgum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. apríl 2012 21:56 Gylfi Þór Sigurðsson fagnar einu marka sinna með Swansea. Nordic Photos / Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson segir að það hafi komið sér í opna skjöldu að hafa verið útnefndur leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Hann fékk fregnirnar á æfingu með Swansea í morgun. „Þetta er mikill heiður en þessu bjóst ég alls ekki við," sagði Gylfi þegar Vísir heyrði í honum nú í kvöld. „Það var skemmilegt að byrja daginn á þennan máta. Okkur var tilkynnt um þetta í upphafi æfingarinnar og voru félagarnir mjög ánægðir með að fá þessar fréttir." Gylfi varð um leið fyrsti leikmaður Swansea til að hljóta þennan heiður en einnig fyrsti Íslendingurinn. „Það er auðvitað mjög gaman að því og vonandi verða þetta bara fyrstu verðlaunin af mörgum. Það eru margir góðir leikmenn sem hafa fengið þau í gegnum tíðina." Hann segir að verðlaun eins og þessi hjálpi til við að auka sjálfstraustið. „Það er núna í góðu lagi enda hefur gengið vel að undanförnu, bæði mér og liðinu öllu. Nú verður maður bara að halda áfram og einbeita sér að því að hjálpa Swansea að vinna leiki." Swansea mætir næst Newcastle á heimavelli sínum á föstudaginn langa. „Ég mun reyna mitt besta eins og alltaf. Ég á enn eftir að skora á heimavelli og væri auðvitað gaman að fá að upplifa það líka."
Mest lesið Fengu ljót skilaboð eftir óléttumynd: „Fyrirmunað að skilja þessi viðbrögð“ Enski boltinn Líbönsk landsliðskona lífshættulega slösuð eftir árás Ísraelsmanna Fótbolti Eldræða Lárusar Orra: Þurfum ferskan þjálfara inn með ástríðu Fótbolti „Mikilvægt að sýna fólki að ég er ekki brjálæðingur“ Fótbolti Lélegasta landslið heims fékk flestar heimsóknir eftir sögulegan sigur Fótbolti Nefna völl eftir nemanda sem lést á golfvelli Sport X eftir landsleikinn: Skiptar skoðanir um Hareide og hettan hans Bellamy Fótbolti Einkunnir Íslands: Vafasöm varnarlína Fótbolti Gekk út eftir afar vandræðalegan tuttugu sekúndna blaðamannafund Fótbolti Messi jafnaði heimsmet með frábærum hætti Fótbolti Fleiri fréttir Fengu ljót skilaboð eftir óléttumynd: „Fyrirmunað að skilja þessi viðbrögð“ Guardiola framlengir við Man. City Klopp vildi fá Antony í stað Salah Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Amorim fékk loksins að stýra æfingu hjá Man. United Liverpool fær Van Dijk fyrr til baka Fékk sjö leikja bann fyrir það sem hann sagði um eigin fyrirliða Man. Utd reynir við rándýra ungstirnið sem Amorim leyfði að blómstra Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Scott McTominay sér ekki eftir neinu Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Coote dómari í enn verri málum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Bruno til bjargar Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni Sjá meira