Innlent

Tíu tilkynningar um kynferðismisnotkun eftir þrjár brúðusýningar

Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar
Brúðuleikhús Blátt Áfram mun á næstu misserum fræða öll átta ára börn í grunnskólum landsins um kynferðislegt ofbeldi. Í einum skóla sem leikhúsið heimsótti komu upp tíu barnaverndarmál eftir þrjár sýningar.

Brúðuleikhús Blátt áfram hefur verið við störf frá árinu 2005 en sýning leikhússins Krakkarnir í hverfinu er forvarnarfræðsla fyrir börn gegn líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi.

„Það eru meters háar brúður sem Hallveig Thorlacius og Helga Arnalds sjá um og brúðurnar tala við börnin og segja þeim frá því að þær hafi orðið fyrir ofbeldi og hvernig þær fengu hjálp," segir Sigríður Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Blátt áfram.

Stjórnvöld undirrituðu í gær þriggja ára samkomulagi um vitunarvakningu um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum. Fyrsta skref átaksins er að fræða börn í skólum landsins og mun brúðuleikhúsið heimsækja 2. bekk allra grunnskóla á landinu.

„Þannig að þau börn sem eru að verða fyrir ofbeldi þau átta sig á því í rauninni hvað er að gerast og þau rétta oft upp hönd og segja: það er verið að gera svona við mig," segir Sigríður.

Sigríður segir að sláandi mörg mál hafi komið upp í kjölfar sýningarinnar.

„Til dæmis í einum skóla vorum við með þrjár sýningar og það komu tíu tilkynningar til barnaverndar í kjölfarið en við sáum að börn þráðu að fá að segja frá og fá tækifæri til að greina frá þessum upplýsingum," segir Sigríður.

Hún segir foreldra eiga erfitt með að fræða börn um þessi mál og því hjálpi sýningin við að koma umræðunni af stað.

„Við auðvitað erum ekki að setja ábyrgðina á börnin hérna heldur erum við að gefa þeim verkfæri alveg eins og við kennum þeim umferðarreglur og sund og slíkt," segir Sigríður að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×