Fótbolti

Stjörnunar í PSG byrja vel | Öll úrslit kvöldsins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Zlatan komst í sögubækurnar í kvöld.
Zlatan komst í sögubækurnar í kvöld.
Fyrstu átta leikjunum í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu er nú lokið og var skorað í þeim öllum nema einum.

Stórstjörnunar í Paris Saint-Germain hófu tímabilið af miklum krafti með 4-1 sigri á Dynamo Kiev á heimavelli. Markaskorarar Frakkanna í kvöld áttu það sameiginlegt að hafa verið keyptir frá stórum félögum í Evrópu.

Zlatan Ibrahimovic varð fyrstur til og hefur hann nú skorað með alls sex liðum í Meistaradeild Evrópu - sem er met. Svo bættust þeir Thiago Silva, Alex og Javier Pastore í hópinn.

Þýsku liðin Schalke og Dortmund byrjuðu einnig á góðum sigrum, sem og spænska liðið Malaga sem vann Rússana í Zenit afar sannfærandi, 3-0.

Öll úrslit kvöldsins eru hér fyrir neðan og markaskorarar má sjá með því að smella á leikina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×