Lífið

23 þúsund manns sjá Frostrósir, Jólagesti Björgvins og Baggalút

Baggalútur nálgast Jólagesti Björgvins í vinsældum. Frostrósir enn á toppnum.  



Búist er við að um 23 þúsund miðar seljist samanlagt á jólatónleika Baggalúts, Björgvins Halldórssonar og Frostrósa fyrir þessi jól.

Baggalútur er farinn að nálgast Jólagesti Björgvins mjög í vinsældum. Grallararnir halda níu jólatónleika í ár, sem þegar er uppselt á. Seldir miðar eru í kringum fimm þúsund í heildina. Þrennir tónleikar eru afstaðnir í Hofi á Akureyri og einir verða á Akranesi í kvöld. Fimm verða svo í Háskólabíói í desember.

Baggalútsmenn hafa aldrei áður haldið jafnmarga jólatónleika á einu ári. "Fólk fær útrás fyrir Baggalút í desember. Svo fáum við mestmegnis að vera í fríi aðra mánuði ársins," segir Bragi Valdimar Skúlason. "Ég veit ekki hvenær við fáum að hætta þessu. Fólk er farið að heimta miða í ágúst. Jólahefðir, þær eru svolítið sérstakar."

Spurður hvort Baggalútur eigi eftir að halda áfram með jólatónleika næstu tuttugu árin segir hann: "Mér sýnist allt stefna í það.

Við verðum sennilega ellidauðir í einhverjum jólafíling." Þess má geta að enn eitt jólalagið frá Baggalúti er væntanlegt og heitir það Heims um bóleró.

Jólagestir Björgvins hafa fest sig í sessi undanfarin ár. Tvennir tónleikar verða haldnir í Laugardalshöll 15. desember. Uppselt er á þá síðari klukkan 21 en enn eru til miðar á þá fyrri sem verða kl. 16. Líklegt er að þeir miðar seljist upp og samanlagt verða því um sex þúsund manns sem sjá Bó og félaga í Höllinni.

"Þetta er sjöunda árið sem ég er með þetta og það er enn mikill áhugi á þessu. Það hefur bæst svolítið í tónleikaflóruna því það er mikið af afþreyingu og tónleikum af öllu tagi fyrir jólin. Við reynum að halda miðaverðinu í skefjum en sláum ekkert af gæðunum," segir Björgvin.

Frostrósir eru vinsælastar fyrir þessi jól. Hátt í átta þúsund miðar hafa selst á fimm tónleika þeirra í Eldborgarsal Hörpunnar fyrir jólin. Um er að ræða ferna hefðbundna Frostrósatónleika og eina Klassík-tónleika. Tilkynnt hefur verið um aukatónleika fyrir báðar tegundirnar. Þrennir tónleikar verða einnig haldnir í Hofi á Akureyri og er uppselt á eina þeirra.

Samkvæmt Samúel Kristjánssyni hjá Frostrósum hafa samanlagt selst um níu til tíu þúsund miðar á alla tónleikana í desember. „Það hafa aldrei verið haldir Frostrósatónleikar sem ekki selst upp á. Við erum í skýjunum með að halda okkar hlut.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×