Tíska og hönnun

Ljótufatakeppni á Billboard

Eistneska söngkonan Kerlis toppaði skringilegan klæðnað með bleikum og skítugum buffaló-skóm.
Eistneska söngkonan Kerlis toppaði skringilegan klæðnað með bleikum og skítugum buffaló-skóm.
Billboard verðlaunahátíðin fór fram í Las Vegas um helgina og stjörnurnar flykktust til eyðimerkurborgarinnar af því tilefni. Adele vann flest verðlaun kvöldsins en hún var fjarri góðu gamni. Kempurnar í hljómsveitinni U2 voru valdir bestir á tónleikum og Coldplay rokksveit ársins.

Rauða dreglinum var að sjálfsögðu rúllað út og óhætt að segja að klæðaburður gestanna hafi verið með fjölbreyttara móti. Það mætti halda að sumir væru mættir á ljótufatakeppni. Hægt er að fletta myndasafninu með því að smella á myndina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.