Strákarnir töpuðu með 18 stigum í Svartfjallalandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. ágúst 2012 20:15 Hlynur Bæringsson skoraði 19 stig í kvöld. Mynd/Stefán
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta átti aldrei möguleika á móti sterku liði Svartfellinga í Niksic í undankeppni Evrópumótsins í kvöld. Svartfellingar unnu leikinn á endanum með 18 stigum, 85-67 eftir að hafa komist mest 25 stigum yfir í fyrri hálfleiknum. Íslenska liðið hefur þar með tapað tveimur leikjum í röð og þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum í riðlinum. Sundsvall-mennirnir Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson voru atkvæðamestir í íslenska liðinu, Hlynur með 19 stig og Jakob með 15 stig. Haukur Helgi Pálsson og Jón Arnór Stefánsson skoruðu báðir 13 stig. Svartfellingarnir byrjuðu leikinn af krafti, skoruðu sjö fyrstu stigin og voru komnir í 21-9 eftir aðeins fimm mínútur. Svartfjallaland var síðan 26-15 yfir eftir fyrsta leikhlutann og Jón Arnór Stefánsson var ekki enn kominn á blað. Svartfellingar skoruðu þrettán fyrstu stig annars leikhlutans og voru þar með komnir í 39-15 og útliðið ansi svart hjá íslensku strákunum. Íslenska liðið náði aðeins að laga stöðuna fyrir hálfleik með því að vinna síðustu 90 sekúndurnar 7-2. Svartfjallaland var því 48-32 yfir í hálfleik. Hlynur Bæringsson var með 10 stig í fyrri hálfleiknum og Jakob Örn Sigurðarson og Jón Arnór Stefánsson skoruðu báðir sex stig. Jón Arnór skoraði öll sín stig í hálfleiknum á síðustu fimm mínútum hans. Strákarnir byrjuðu seinni hálfleikinn á öðrum góðum spretti og náðu að minnka muninn í ellefu stig, 39-50, með því að skora 7 af fyrstu 9 stigum seinni hálfleiksins. Íslenska liðið vann þriðja leikhlutann á endanum 13-12 og Svartfellingar voru því fimmtán stigum yfir, 60-45, fyrir lokaleikhlutann. Svartfellingar gáfu þá aftur í, skoruðu tíu af fyrstu ellefu stigum fjórða leikhlutans og komust í 70-46. Íslenska liðið náði að laga stöðuna á lokamínútunum en á endanum munaði 18 stigum á liðunum, 85-67.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira