Innlent

Málþófi á Alþingi lokið - Atkvæði um stjórnlagaráð greidd á fimmtudag

Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar
Samkomulag náðist á sjötta tímanum á milli stjórnarflokkana og stjórnaraðstöðunnar um að ljúka umræðum um stjórnlagaráð. Sá þingmaður sem oftast talaði í umræðunum fór alls 115 sinnum í pontu.

Umræðan um stjórnlagaráðsmálið hafði staðið yfir í 46 klukkustundir samtals klukkan þrjú í dag. Einhverjir hafa viljað kalla þetta málþóf - Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er þó á öðru máli.

„Það er náttúrulega okkur að mæta þegar gölluðum tillögum á að koma í gegnum þingið sem eiga engan rétt á sér," segir Vigdís.

Alls tóku fjörutíu og sex þingmenn tekið til máls í umræðunni en fimm þeirra hafa verið hvað málglaðastir. Vigdís hefur komið alls 115 sinnum í pontu og talað í tæpar fimm klukkustundir. Á eftir henni kemur Pétur Blöndal sem stigið hefur í pontu 86 sinnum og rætt málið í rúma þrjá og hálfa klukkustund. Fast á hæla hans kemur svo Gunnar Bragi Sveinsson sem hefur tekið til máls jafnoft og Pétur en þó verið tveimur mínútum fljótari að ljúka sér af. Birgir Ármannsson og Ásmundur Einar Daðason hafa líka verið duglegir, Birgir hefur farið 68 sinnum í pontu og talað í tæpa þrjár klukkustundir og Ásmundur hefur staðið frammi fyrir þinginu 53 sinnum í þessu máli og talað í rúmar tvær klukkustundir.

„Mín skilgreining á málþófi er sú að þá er talað samfellt um sama hlutinn," segir Vigdís. „En hér erum við að tala um nýja hluti, þannig að þetta er ekki málþóf."

Samkomulag náðst á sjötta tímanum á milli stjórnarmeirihlutans og stjórnarandstöðunnar um að ljúka umræðum um stjórnlagaráðsmálið. Er umræðunni því lokið.

„Mér þykir það mjög miður því ég á mjög margt eftir órætt," sagði Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Alþingi í dag.

Samkvæmt þeim þingmönnum sem fréttastofa ræddi við nú rétt fyrir fréttir verða greidd atkvæði um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan ellefu á fimmtudaginn. Forseti þingsins er sagður hafa hoggið á hnútinn með því að taka önnur mál sem eru í ágreiningi af dagskrá gegn því að umræðum um stjórnlagaráð lyki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×